Í upphafi var orðið og orðið var Guð.
Orð eru til alls fyrst.
Verði ljós og það varð ljós.
Ljósið er lífið.
Lífið er Guð.
Hvernig væri lífið án ljóssins?
Það væri ekkert líf ef ekki væri ljós!
Ef það er ekkert líf án ljóss
þá er ekkert líf án Guðs!
Leyfum Guði að gefa okkur líf
Leyfum Guði að gefa okkur ljós
Leyfum ljósinu að skína í lífi okkar
Leyfum Guði að lýsa líf okkar.
Gleði, gleði, gleði
Fylling - lífsfylling
Hamingja - Útopía
Hvar er hamingja?
Þar sem ljósið er!
Hvar er ljósið?
Þar sem Guð er!
Vilt þú hleypa ljósinu inn í þitt líf?
Guð kemur með það til þín,
þegar þú ert tilbúin að taka við því
Segðu bara; "Já takk Guð,
ég vil ljós þitt í mitt líf,
Í Jesús nafni, Amen."
Og þá kemur ljósið í þitt líf,
Orð eru til alls fyrst.
Orðið er ljós,
og ljósið er Guð.
22.06.2014.
MJ.
Sunday, June 22, 2014
Sunday, June 8, 2014
Hvítasunnudagur
Postulasagan 2:1-3
2 Þá er upp var runninn hvítasunnudagur, voru þeir allir saman komnir.
2 Varð þá skyndilega gnýr af himni eins og aðdynjanda sterkviðris og fyllti allt húsið, þar sem þeir voru.3 Þeim birtust tungur, eins og af eldi væru, er kvísluðust og settust á hvern og einn þeirra.
4 Þeir fylltust allir heilögum anda og tóku að tala öðrum tungum, eins og andinn gaf þeim að mæla.
5 Í Jerúsalem dvöldust Gyðingar, guðræknir menn, frá öllum löndum undir himninum.
6 Er þetta hljóð heyrðist, dreif að fjölda manns. Þeim brá mjög við, því að hver og einn heyrði þá mæla á sína tungu.
7 Þeir voru frá sér af undrun og sögðu: "Eru þetta ekki allt Galíleumenn, sem hér eru að tala?
8 Hvernig má það vera, að vér, hver og einn, heyrum þá tala vort eigið móðurmál?
9 Vér erum Partar, Medar og Elamítar, vér erum frá Mesópótamíu, Júdeu, Kappadókíu, Pontus og Asíu,
10 frá Frýgíu og Pamfýlíu, Egyptalandi og Líbýubyggðum við Kýrene, og vér, sem hingað erum fluttir frá Róm.
11 Hér eru bæði Gyðingar og þeir sem tekið hafa trú Gyðinga, Kríteyingar og Arabar. Vér heyrum þá tala á vorum tungum um stórmerki Guðs."
12 Þeir voru allir furðu lostnir og ráðalausir og sögðu hver við annan: "Hvað getur þetta verið?"
13 En aðrir höfðu að spotti og sögðu: "Þeir eru drukknir af sætu víni."
14 Þá steig Pétur fram og þeir ellefu, og hann hóf upp rödd sína og mælti til þeirra: "Gyðingar og allir þér Jerúsalembúar! Þetta skuluð þér vita. Ljáið eyru orðum mínum.
15 Eigi eru þessir menn drukknir, eins og þér ætlið, enda aðeins komin dagmál.
16 Hér er að rætast það, sem spámaðurinn Jóel segir:
17 Það mun verða á efstu dögum, segir Guð, að ég mun úthella anda mínum yfir alla menn. Synir yðar og dætur munu spá, ungmenni yðar munu sjá sýnir og gamalmenni yðar mun drauma dreyma.
18 Jafnvel yfir þræla mína og ambáttir mínar mun ég á þeim dögum úthella anda mínum, og þau munu spá.
19 Og ég mun láta undur verða á himnum uppi og tákn á jörðu niðri, blóð og eld og reykjarmökk.
20 Sólin mun snúast í myrkur og tunglið í blóð, áður dagur Drottins kemur, hinn mikli og dýrlegi.
21 En hver sá, sem ákallar nafn Drottins, mun frelsast.
22 Ísraelsmenn, heyrið þessi orð: Jesús frá Nasaret var maður, sem Guð sannaði yður með kraftaverkum, undrum og táknum, er Guð lét hann gjöra meðal yðar, eins og þér sjálfir vitið.
23 Hann var framseldur að fyrirhuguðu ráði Guðs og fyrirvitund, og þér létuð heiðna menn negla hann á kross og tókuð hann af lífi.
24 En Guð leysti hann úr nauðum dauðans og reisti hann upp, enda gat það aldrei orðið, að dauðinn fengi haldið honum,
25 því að Davíð segir um hann: Ávallt hafði ég Drottin fyrir augum mér, því að hann er mér til hægri hliðar, til þess að ég bifist ekki.
26 Fyrir því gladdist hjarta mitt, og tunga mín fagnaði. Meira að segja mun líkami minn hvílast í von.
27 Því að ekki munt þú skilja sálu mína eftir í helju og eigi láta þinn heilaga verða rotnun að bráð.
28 Kunna gjörðir þú mér lífsins vegu. Þú munt mig fögnuði fylla fyrir þínu augliti.
29 Bræður, óhikað get ég við yður talað um ættföðurinn Davíð. Hann dó og var grafinn, og leiði hans er til hér allt til þessa dags.
30 En hann var spámaður og vissi, að Guð hafði með eiði heitið honum að setja í hásæti hans einhvern niðja hans.
31 Því sá hann fyrir upprisu Krists og sagði: Ekki varð hann eftir skilinn í helju, og ekki varð líkami hans rotnun að bráð.
32 Þennan Jesú reisti Guð upp, og erum vér allir vottar þess.
33 Nú er hann upp hafinn til Guðs hægri handar og hefur af föðurnum tekið við heilögum anda, sem fyrirheitið var, og úthellt honum, eins og þér sjáið og heyrið.
34 Ekki steig Davíð upp til himna, en hann segir: Drottinn sagði við minn drottin: Set þig mér til hægri handar,
35 þangað til ég gjöri óvini þína að fótskör þinni.
36 Með öruggri vissu viti þá öll Ísraels ætt, að þennan Jesú, sem þér krossfestuð, hefur Guð gjört bæði að Drottni og Kristi."
37 Er þeir heyrðu þetta, var sem stungið væri í hjörtu þeirra, og þeir sögðu við Pétur og hina postulana: "Hvað eigum vér að gjöra, bræður?"
38 Pétur sagði við þá: "Gjörið iðrun og látið skírast hver og einn í nafni Jesú Krists til fyrirgefningar synda yðar; þá munuð þér öðlast að gjöf heilagan anda.
39 Því að yður er ætlað fyrirheitið, börnum yðar og öllum þeim, sem í fjarlægð eru, öllum þeim, sem Drottinn Guð vor kallar til sín."
40 Og með öðrum fleiri orðum vitnaði hann, áminnti þá og sagði: "Látið frelsast frá þessari rangsnúnu kynslóð."
41 En þeir, sem veittu orði hans viðtöku, voru skírðir, og þann dag bættust við um þrjú þúsund sálir.
42 Þeir ræktu trúlega uppfræðslu postulanna og samfélagið, brotning brauðsins og bænirnar.
43 Ótta setti að hverjum manni, en mörg undur og tákn gjörðust fyrir hendur postulanna.
44 Allir þeir sem trúðu héldu hópinn og höfðu allt sameiginlegt.
45 Þeir seldu eignir sínar og fjármuni og skiptu meðal allra eftir því sem hver hafði þörf á.
46 Daglega komu þeir saman með einum huga í helgidóminum, þeir brutu brauð í heimahúsum, neyttu fæðu saman í fögnuði og einlægni hjartans.
47 Þeir lofuðu Guð og höfðu vinsældir af öllum. En Drottinn bætti daglega við í hópinn þeim, er frelsast létu.
Sunday, April 27, 2014
Öll fögnum við sumri og sól, ljós og fegurð
náttúrunnar þegar hún vaknar af vetrardvala.
Guð vill að við séum eins og skínandi sól og að
við vöxum og döfnum eins og jurtir jarðar að vori til.
Vilt þú leyfa Guði að vera sólin í lífi þínu,
rækta þig og gefa þér Guðdómlega fegurð?
Þú getur leyft honum það með bænum þínum
til Hans...Hann bíður eftir því að heyra frá
þér hvort hann megi næra sál þína og
líkama þinn með ljósi sínu og kærleik!
Megi GLEÐI og GÆFA GUÐS fylgja þér í sumar,
Gleðilegt sumar
* * *
Sunday, April 20, 2014
Upprisa Jesús Krists er okkar von
Upprisa Jesús Krists á Páskadag markar tímamót í tilveru okkar; von um eilíft líf.
Tímatal okkar byrjaði þegar Jesús Kristur fæddist,en síðan eru liðin 2014 ár.
Von okkar fæddist þegarJesús Kristur reis upp frá dauðum og sendi okkur
heilagann anda í sinn stað. Allar okkar bænir eiga aðenda á orðunum;
"Í Jesús nafni, Amen"
vegna þessað Jesús er tengiliður okkar við Guð almáttugan.
Jesús sagði, meðan hann gekk meðal vor og kenndium og upp úr árinu 30,:
"Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig".
Þetta þýðir að lykillinn að Guði/hurðin að húsi Guðs er í gegnum Jesús.
Þess vegna segjum við: "Í Jesús nafni" en það þýðir að við trúum því að
Jesús hafi dáið til að veita okkur eilíft líf.
Amen þýðir: "Megi svo verða"
sem merkir að við biðjum þess að við verðum bænheyrð í bænum okkar
af Guði drottni alls sem er.
Páskadagur er hátíðisdagur; dagur vonar og trúar;
Þann dag og reyndar alla daga staðfestum við TRÚokkar á Jesús og Guð
með því að trúa því að Jesús hafi gengið hér á jörðinni og að hann
hafi dáið fyrir okkur á krossinum. VON okkar byggist á trú okkar um að ef
við breytum rétt þá eigum við VON um eilíft líf í nýjum PARADÍSARHEIMI GUÐS.
* * *
Gleðilega páskahátíð

Sunday, April 13, 2014
Kæri lesandi,
Ef við hvorki sjáum né heyrum Guð þá erum við ekki í tengingu við Guð, svo einfalt er það.
Við verðum að leggja okkur fram um að heyra hans orð, skynja hvenær umhverfið talað til okkur í gegnum hann, hvenær hann reynir að ná til okkar með því að sýna okkur eða láta okkur heyra það sem er til góðs fyrir okkur.
Flest treystum við vinum okkar og byggist það á því að við þekkjum vini okkar - höfum myndað vinasamband við þá og leitum til þeirra varðandi ráðgjöf, álit og stuðningi. Það sama gildir með samband okkar við Guð. Til þess að traust myndist frá okkar hendi til Guðs þá verðum við að byggja uppp "vinasamband" við hann. Vinasambandið byggist upp með samvistum við Guð. Samvistir við Guð geta verið í ýmsu formi; bænum til hans, með því að biðja fyrir öðrum og með því að vera samvistum með honum í þögn, hugleiðslu, t.d. krisinni íhugun.
Hægt er að læra kristna íhugun á nokkrum stöðum. Sjá heimasíðun kristinnar íhugunar á Íslandi: www.kristinihugun.is
Megir þú kæri lesandi njóta þeirrar blessunar og leyfa þér að nálgst Guð með vináttu, heilun og blessun í huga. Hann er til staðar fyrir þig ef þú leyfir honum að koma inn í líf þitt. Þú hefur engu að tapa og ALLT að vinna. Ég lofa þér því að þú finnur muninn á því að ganga með Guði (hafa Guð í lífi þínu) og á því lífi sem þú lifaðir án hans.
Megi Guð verða þinn samverðamaður og velgjörðarmaður,
Kærleiksríkar kveðjur, Maria
Sunday, April 6, 2014
Kærleikur
Kærleikurinn er þolinmóður. Guð er kærleikur - Guð er þolinmóður. Guð gefur okkur svigrúm og bíður þolinmóður eftir því að við komum til hans. Sýnum öðrum þolinmæði og biðjum aðra um að sýna okkur þolinmæði. Allt hefur sinn tíma. Allir þurfa sinn tíma til þess að gera það sem þeir eru að gera, allir gera hlutina misjafnlega hratt. Á meðan að góður hugur er á bak við það sem verið er að gera í það og það skiptið þá verða allir að sýna hver öðrum þolinmæði á meðan að verkið er unnið.
Verkið getur verið heima við, í vinnunni, á meðal vina og/eða ættingja.
Sýnum kærleiki í verki með því að vera þolinmóð; veita öðrum frið til þess að ljúka sínum verkum á þeim tíma sem aðstæður, persónuleiki, kunnátta, þekking og jákvæð vinna við verkið krefst.
Guð er þolinmóður og hans vilja er að við séum sem líkust honum.
Gefum öðrum því þolinmóðann kærleik.
Gangið á Guðs "þolinmóðum" vegum og sjáðu frið færast yfir líf þitt!

Subscribe to:
Posts (Atom)